Sömu fíflin,fífla enn....

ójá - það er staðreynd að sama fólkið og tók þátt í að fífla okkur er enn að taka ákvarðanir um hvort þessi eða hinn skuli fá afskrifað.

Það er löngu tímabært að vaska upp.

A)Einn banka fyrir almenning - til að taka á hans vandræðum. - Skilyrði fyrir starfi í slíkum banka væru algerlega fölskvalaus fortíð úr fjármálalífinu hérlendis eða erlendis eða sönnun á að viðkomandi hefði ekki hagsmunatengsl.

B)Einn banka/innheimtustofnun fyrir svokallaða "íslenska fagfjárfesta" -þar sem "leyst" yrði úr málum siðspilltra auðmanna - með sanngjarnri eignaupptöku miðað við ábyrgð.

C)Fangatogara með kvóta frá ríkinu - hvar fólk sem þáði himinhá laun fyrir að bera ábyrgð fær tækifæri á að axla ábyrgðina með "fysískum" hætti.

Svo er maður alltaf hrifinn að þeirri sögu hvort sem hún er sönn eða ekki, þegar að þýsk stjórnvöld voru í vandræðum með að fá þýska auðmenn til þess að gera grein fyrir eignum sínum erlendis eitthvað í kringum '90

Voru þeim þá voru þeim sett þau skilyrði að ef auðmenn sem væru þýskir ríkisborgarar gerðu ekki grein fyrir eignum sínum innan ákveðinna tímamarka yrði ekkert um "heim" að ræða fyrir þá.
í framhaldinu yrðu þeir kærðir fyrir landráð og sviptir ríkisborgararétti sínum.

Einhver svona úrræði þarf - krefst þess auðvitað að þingheimur samanstandi af fólki sem hefur dug í til þess að standa undir sjálfu sér.

Og bananar.....


mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Heyr, heyr.  Mér líst alveg sérstaklega vel á fangatogarann.  Samt er ég hrædd um að stjórnvöld séu alveg að missa af lestinni.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 16.3.2010 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband